Æfðu til að verða betri. Litlir hópar, góð stemning og þjálfun sem hentar hverju barni.
Körfuboltaskólinn er fyrir krakka á aldrinum 6–9 ára sem hafa gaman af körfubolta og vilja læra aðeins meira. Markmiðið er að byggja upp góðan grunn í leiknum á jákvæðan og skemmtilegan hátt.
Á æfingunum leggjum við áherslu á færni, sjálfstraust og góðar venjur. Krakkarnir fá tækifæri til að bæta sig, takast á við nýjar áskoranir og njóta þess að æfa með öðrum sem hafa áhuga á körfubolta.
Þetta er fyrir þau sem vilja leggja aðeins meira á sig, án þess að gleyma því að körfubolti á að vera skemmtilegur.
Lærum, bætum okkur og höfum gaman saman.
Fyrir krakka sem vilja læra meira og taka sín fyrstu skref í körfubolta. Við leggjum grunn að góðri tækni, sjálfstrausti og leikgleði í jákvæðu og skemmtilegu umhverfi.
Fyrir krakka sem vilja taka næsta skref. Við byggjum áfram á grunninum, þróum færni og leikskilning og hvetjum börnin til að taka stöðugum framförum.
Allar æfingar fara fram í íþróttahúsinu við Sjálandsskóla. Pláss eru takmörkuð í hverjum hóp til að tryggja gæði þjálfunar.
Já, við gerum ráð fyrir að börn hafi æft körfubolta og hafi grunntækni. Þetta er fyrir börn sem vilja taka framförum og verða betri.
Haustönnin kostar 59.900 kr og þar með fylgir forskráningarréttur á næstu önn.
Körfuboltaskór, vatnsflasku og þægilegan íþróttaklæðnað. Boltar eru til staðar á öllum æfingum — ekkert þarf að kaupa fyrirfram.
Við höfum tvo hópa — 6–7 ára og 8–9 ára. Börnin æfa með jafnöldrum sínum og fá þjálfun sem hentar nákvæmlega þeirra þroskastigi.
Já, og systkjnaafsláttur er í boði þegar systkini skrá sig samtímis. Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar fjölskyldunni.
Fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins. Ætlar að tryggja börnum gæðaþjálfun og persónulega athygli á æfingum.
Tryggðu þér pláss á haustönninni. 59.900 kr fyrir haustönnina. Þar með fylgir forskráningarréttur á næstu önn. Pláss eru takmörkuð.
Hafa samband →